← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Wembayama blæs á áfengis og veðmálafyrirtæki

Stórstjarna San Antonio Spurs er ekki hrifinn af því að auglýsa veðmál og áfengi og hafnar samstarfi við slík fyrirtæki.

Wembayama blæs á áfengis og veðmálafyrirtæki

Victor Wembayama hefur áður sagt að veðmála- og áfengis auglýsingar séu komnar út fyrir öll velsæmismörk í tengslum við íþróttir en fyrirtæki á borð við Draftkings og Budweiser auglýsa grimmt í kringum íþróttir.

Stærstu nöfnin í fjölmiðlum sem fjalla um íþróttir auglýsa líka veðmál í gríð og erg og besta dæmið um það er Bill Simmons, sem er einn helsti hlaðvarpari heims. Ekki bara í íþróttaheiminum.

„Allt sem þú gerir er val. Þú getur ákveðið að hafa góð áhrif utan vallar, vinna í góðgerðarmálum eða auglýst alkóhól og veðmál,“

Sagði Wembayama í samtali við 60 mínútur í Bandaríkjunum.

Fleiri fréttir