NBA-fréttir
Westbrook heiðraður
Þann 7. febrúar munu Oklahoma City Thunder hengja upp treyju Russell Westbrook, númer 0.

Félagið tilkynnti þetta á mánudag.
Westbrook var valinn í fyrstu umferð nýliðavalsins 2008 af Seattle SuperSonics, sem fluttu til Oklahoma City það sama sumar og urðu að Thunder. Hann spilaði því sitt fyrsta tímabil í nýrri borg og lék fyrstu 11 af 18 tímabilum sínum í NBA með félaginu.
„Margir leikmenn hafa áhrif, en aðeins þeir bestu skilja eftir sig arfleifð. Arfleifð Russells Westbrook var byggð bæði inni á vellinum og í samfélaginu.“
„Hugarfar hans var óbilandi og skuldbinding hans djúp. Af öllum þessum ástæðum líta íbúar Oklahoma á hann sem einn af sínum og númerið hans verður dregið upp í rjáfur í Oklahoma City að eilífu.“
Sagði Sam Presti, varaforseti og framkvæmdastjóri Thunder, í yfirlýsingu.
Westbrook var valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar tímabilið 2017, þegar hann skoraði 31,6 stig, tók 10,7 fráköst og gaf 10,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann náði þrefaldri tvennu að meðaltali á næstu tveimur tímabilum með liðinu. Thunder skiptu honum frá sér sumarið 2019.
Westbrook er aðeins annar leikmaður Thunder sem fær treyju sína hengda upp, á eftir Nick Collison.
Russell lagði skóna á hilluna í sumar, þrátt fyrir að nokkur lið hefðu viljað fá hann, því hann vildi enda ferilinn á sínum eigin forsendum.
Það er engin spurning að Westbrook er einn sá besti sem hefur klæðst Thunder treyjunni.
