← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Leikir helgarinnar á Livey

NBA deildin er í fullum gangi! Það verða tveir leikir í þráðbeinni á Livey um helgina.

Leikir helgarinnar á Livey

Í vetur verða að jafnaði tveir leikir um helgar í beinni á Livey. Þessa helgi er einn seint aðfaranótt sunnudags fyrir þá allra hörðustu og hinn til að klára helgina.

Byrjum þessa veislu á

Orlando Magic @ Golden State Warriors

Sunnudagur 8. nóvember Kl. 01:30
Lýsandi - Leó Már Jónsson

"Laugardags" leikurinn verður um miðja nótt aðfaranótt sunnudags en er það alls ekki leikur í verri kantinum. Golden State hefur verið eitt óvæntasta liðið þar sem margir voru snemma búnir að afskrifa þá fyrir þetta tímabil en með innkomu frá gamla nýliðanum Yaxel Lendenborg, eru Warriors eitt heitasta liðið í deildinni með sex sigra í röð. Þrátt fyrir holuna sem Porzingis skilur eftir sig virðast allir tilbúnir að stíga upp og andinn allt annar í Golden State.

Orlando eru ekki jafn heitir, 2 sigrar í 8 leikjum og sáum við seinustu helgi á Livey þegar liðið fékk Boston í heimsókn að liðið er ekki með nógu margar skyttur. Einnig er liðið í miklu meiðsla basli og eru bæði Jalen Suggs og Paulo Bancero meiddir. Liðið situr í 29. sæti yfir sig skoruð í leik og er sóknarleikurinn á köflum ansi ljótur.

Philadelphia 76ers @ Chicago Bulls

Sunnudagur 8. nóvember Kl. 21:30
Lýsandi - Sigurður Orri Kristjánsson

Hvar á að byrja með Philly, ef það er eitt lið sem þú átt að fylgjast með í vetur þá eru það þeir. Það kemur vissulega ekki á óvart þegar þú skoðar liðið á blaði og svo hafa lið sem Lebron James spilar með tilhneigingu til að halda blaðamönnum uppteknum yfir tímabilið.

Svo eru það Chicago Bulls sem þrátt fyrir spennandi nýliða í Caleb Wilson hafa ekki verið upp á marga fiska. Það er þó gömul saga og ný að slök lið gíra sig upp þegar Lebron kemur í heimsókn.

Tryggðu þér áskrift á www.livey.is

Fleiri fréttir