NBA-fréttir
Curry stekkur fram úr Robertson
Stephen Curry situr nú í 17. sæti á lista yfir stigahæstu leikmenn sögunnar.

Stephen Curry var í 18. sæti yfir stigahæstu leikmenn sögunnar fyrir leikinn og þurfti þrjú stig til að komast stigi á undan Oscar Robertson (26.710). Curry gerði það sem Curry gerir best og hitti úr þristi þegar 7:03 voru eftir af fyrsta leikhluta, og þar með var hann kominn stigi á undan Oscar. Curry endaði leikinn með 29 stig og sex þrista.
Stephen situr nú í 17. sæti listans með 26.737 stig, 38 stigum á eftir Denver Nuggets-bakverðinum DeMar DeRozan (26.775), sem er í 16. sæti. Þeir tveir munu keppast um það á tímabilinu hvor þeirra kemst fyrr fram úr Hakeem Olajuwon (26.946) í 15. sæti. DeRozan vantar 172 stig til þess, en Curry 210.
Sjáðu þristinn sem kom honum í 17 sætið:
