NBA-fréttir
Bronny James aftur í G-deildina
Margir höfðu miklar væntingar til sonar LeBrons en þær þurfa að bíða.

Bronny James hefur verið sendur frá Los Angeles Lakers til að spila með Coachella Valley Lakers, sem leika í NBA G-deildinni, áður þekktri sem D-deildin (Development League).
Spilatími hefur verið af skornum skammti hjá Bronny. Hann hefur aðeins komið við sögu í fimm af sjö leikjum og spilað að meðaltali aðeins 2,4 mínútur í leik.
James var áberandi góður í G-deildinni síðustu tvö tímabil, með 18,4 stig, 4,4 stoðsendingar og 4,0 fráköst að meðaltali í 25 leikjum.
Þetta er þriðja tímabil hans í NBA og margir höfðu vonast til þess að Bronny tæki stökkið í ár og yrði fastur hluti af róteringu JJ Redick þjálfara.
