NBA-fréttir
Upphitun fyrir opnunarkvöldið
NBA deildin hefst með látum í kvöld, þriðjudaginn 20. október. Allir þrír leikirnir verða í beinni á Livey, með íslenska lýsendur.

19:00 Boston @ Detroit
Við opnum tímabilið með leik sem kemur kannski mörgum á óvart. Boston er með töluvert breytt lið og hvað þá ef við skoðum liðið sem vann fyrir tveimur árum. Detroit kemur inn með lítið breytt lið en var það lið sem var með eina mestu óvissuna í Jalen Duren og samningi hans.
Þessi lið hafa ekki mæst í playoffs síðan 2008 þegar Celtic unnu 4-2 í úrslitum austurdeildarinnar og og unnu titilinn gegn Lakers. Þrátt fyrir að ekki sé mikill rígur undanfarin ár en seinustu leikir liðana hafa verið jafnir.
Leikmenn til að fylgjast með í leiknum:
Boston
- Paul George, hefur lítið vel út á undirbúningstímabilinu og virðist smella vel með Tatum en þeir hafa ekki spilað marga leiki saman.
- Jayson Tatum, kom ótrúlega snemma til baka frá hásinarslitum og leit vel út þrátt fyrir það. Endaði seinasta tímabil meiddur og hefur mikið að sanna núna þegar Jaylen Brown er farinn. Fyrsta árið á ferlinum þar sem hann spilar ekki með Brown. Getur hann leitt Boston sem eina “ofur stjarnan”?
- Mitchell Robinson, kemur sem nýkrýndur meistari með New York og er að spila sitt fyrsta tímabil utan MSG. Hann vildi yfirgefa liðið en vegna launamála fór hann til eins af aðalóvinum Knicks.
Detroit
- Jalen Duren, er hausinn á honum rétt skrúfaður á eftir langar og ljótar samningaviðræður þar sem Detroit vildi ekki bjóða honum allan þann pening sem hann gat fengið? Hann endaði síðasta tímabil á hryllilegan hátt.
- John Collins & Isaiah Joe, ég tek þessa tvo saman þar sem þeir eru tveir stærstu nýliðarnir í liðinu og þurfa ekki aðeins að fylla í skarð þeirra sem fóru, Caris Levert og Tobias Harris. Heldur þurfa þeir líka að koma með eitthvað nýtt inn í sóknarleikinn sérstaklega þar sem við sáum það í fyrra að Cade getur ekki sigrað heiminn einn.
- Paul Reed, hann hefur sýnt góð augnablik en átti náði ekki að halda því uppi jafn vel í playoffs. Hann þarf að sýna að hann geti verið aðal fimman af bekknum þar sem herra kúltúr Isaiah Stewart er farinn.
23:00 Philadelphia @ New York
Nýkrýndir meistarar New York Knicks fá hringina sýna afhenta og lyfta titillborðanum upp. Þeir geta ekki fagnað of lengi þar sem nýjasta “ofur liðið” kemur í heimsókn þar sem LeBron og nýju félagar hans í Philadelphia reyna að skemma fjörið.
Knicks og 76ers mættust í undan úrslitum austursins þar sem New York fór illa með Philly og sópuðu þeim 4-0 næstum án þess að svitna. 76ers eru hinsvegar töluvert breyttir allt frá stjörnunum niður í dýpri bekk, þeir jú bættu við einu stærsta nafni NBA sögunnar í LeBron James á einum ef ekki besta díl deildarinnar og skiptu út Paul George fyrir Jaylen Brown í mjög óvæntum skiptum. Þrátt fyrir mikinn styrk á blaði hefur Nick Nurse úr miklu að leysa.
New York hefur líka sínar spurningar. Getur Drummond fyllt í skarðið hans Robinson, hvenær mun leysast úr samningsmálum og þá sérstaklega hjá KAT. þrátt fyrir að vera meistarar eru þeir ennþá besta liðið í austrinu eftir styrkingar hjá ótal fleiri liðum.
Leikmenn til að fylgjast með í leiknum:
Philadelphia 76ers:
- LeBron James, ekki er hægt að tala um Philly án þess að nefna LeBron, hvert er hlutverkið hans og mun hann vera aðalleikstjórnandinn eins og margir halda. Hann hefur verið að meiðast meira og er að spila mikilvæga stöðu varnarlega. Hvernig höndla félagar hans pressuna á að vera liðsfélagar LeBron?
- Jaylen Brown, hann fékk að fara í nýtt lið eftir að hafa talað um að vilja vera maðurinn. Hvernig er hausinn á honum skrúfaður á og verður hann með nægilega stórt hlutverk að hans mati?
- Miðherjarnir. Ég vildi ekki taka einn og einn út hér þar sem eins og margir vita er ekki hægt að treysta á Embiid í 82 leiki. Adem Bona mun þurfa að bæta sig og geta verið aðalmiðherji fleiri leiki en færri og þeir misstu svo vara varamiðherjann Ariel Hukporti út tímabilið.
New York
- KAT, hvar er hausinn eftir erfiðar samningaviðræður. Hann þurfti að fórna miklu til að vinna titilinn en mun hann vilja spila aftur þannig eða vera meiri partur af sókninni aftur til að fá þau laun sem hann vill.
- Andrew Drummond, Drummond kemur frá 76ers eftir fínt tímabil en ekkert meira en það. Hann er byrjaður að skjóta þristum ágætlega og bíður upp á allt annan sóknarleik en Robinson gerði síðustu ár en hann þarf að gera mun meira en við erum vön að sjá.
- Tyler Kolek. Var í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsis mikið yfir tímabilið og átti marga skemmtilega og óvænta leiki í MSG.
01:30 Oklahoma @ San Antonio
Síðast en ALLS ekki síst fáum við tvö af betri liðum deildarinnar og að margra mati framtíðar stórveldi. Þó það sé talað mikið um þessi lið þá hefur Thunder aðeins komist einu sinni í úrslit með þennan hóp og unnu titilinn. Spurs hefur gert það sama en tapað. Þessi lið mættust tólf sinnum á síðasta tímabili (sjö sinnum í úrslitakeppni) þar sem Spurs hafa verið með mikla yfirburði.
Það er ekki mikil breyting á liði San Antonio. Fengu inn Tobias Harris til að hjálpa með til í framlínunni, en Oklahoma neyddist til að gera breytingar vegna launamála. Thunder losuðu sig við Lu Dort, Isaiah Joe og Aron Wiggins og fegnu bara valrétti til baka, en þar sem þeir virðast vera með einn skarpasta leiðtogann deildinni í Sam Presti þá voru þeir með unga stráka sem hafa varla verið að spila en líta vel út.
Leikmenn til að fylgjast með í leiknum:
Oklahoma:
- Chet Holmgren. Hann átti martraðaeinvígi gegn Wemby sem klárlega hatar Chet. Hann þarf að mæta í þennan leik og spila ekki bara betur heldur á annan hátt, taka réttar ákvarðanir, ekki fara bara beint á Wemby án þess að vera með plan.
- Cason Wallace eða A.J. Mitchell, ekki er komið á hreint hver mun taka við sem fimmti byrjunarliðsmaðurinn hjá OKC eftir að Lu Dort var sendur til Atlanta. Cason er ofsalega góður varnarmaður og fyllir þannig vel í skarðið hjá Dort þrátt fyrir að vera minni. A.J. væri að fylla í annað skarð, við höfum séð að þegar hann er inn á og Shai fær að vera af boltanum og koma sér í stöður þannig að liðið er betra sóknarlega.
San Antonio:
- Dylen Harper. Aftur annar leikmaður sem er ekki á þeim stað í liðinu sem hann telur sig eiga að vera á.
- Luke Kornet & Tarris Reed, San Antonio var í miklu basli þegar Wemby fór útaf í fyrra og var hann oft neyddur í að hvíla sig lítið bara svo að liðið myndi ekki tapa leiknum hreinlega. Spurs þurfa að geta treyst á varamiðherjann sinn, en hver verður það.

