Meiðsli
Meiðslalistinn: Tyrese Haliburton frá í nokkrar vikur, Morant meiddist í nótt
Stórstjörnur halda áfram að meiðast

Meiðsli hafa alltaf verið stór partur af NBA deildinni en mörgum finnst fjöldinn í ár vera töluvert meiri en áður. Tvær stjörnur bættust á listann í nótt:
Haliburton frá í nokkrar vikur
Tyrese Haliburton verður frá í að minnsta kosti tvær vikur vegna tognunar aftan í vinstra læri. Rick Carlisle, þjálfari Pacers, sagði að tognunin væri væg og að Haliburton meta hann með viku millibili. Hann spilaði fyrstu fjóra leiki tímabilsins, með 21,8 stig og 9,5 stoðsendingar að meðaltali, en missti af 114-109 tapi gegn 76ers á miðvikudag. Þetta kemur í kjölfar þess að hann missti af öllu síðasta tímabili vegna slitinnar hásinar. Hann hefur áður átt við þessi meiðsli að stríða, í janúar 2024 missti hann af 10 af 11 leikjum og tognaði aftur í playoffs.
Morant meiddist í nótt
Ja Morant fór meiddur af velli í fjórða leikhluta í nótt þegar Blazers töpuðu 124-103 fyrir Grizzlies í fyrsta leik Ja gegn gömlu félögunum. Hann hafði skorað 14 stig og gefið 3 stoðsendingar á 23 mínútum þegar hann fór út með meiðsli aftan í vinstra læri. Micah Nori, þjálfari Portland, sagði að Morant hefði fundið fyrir óþægindum í lærinu og að hann vonaðist til að hafa frekari svör á föstudag. Morant var með 16,3 stig og 6,3 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu þremur leikjunum sem Portland vann alla. Liðið mætir Jazz á laugardag í fyrsta leik fjögurra leikja útivallarferðar.
Meiðsla listinn yfir helstu leikmenn deildarinnar;
- Jalen Williams (Thunder) - vinstri ökkli úr lið og brotið sperrileggsbein, aðgerð - gæti misst af öllu tímabilinu
- Cason Wallace (Thunder) - slitin vinstri axlarvör, aðgerð - gæti misst af öllu tímabilinu
- Alex Caruso (Thunder) - tognun á hægri ökkla - óvíss tímarammi
- Chet Holmgren (Thunder) - bólga í hnéskel á hægra hné - óvíss tímarammi
- Anthony Edwards (Timberwolves) - hnéspeglun á hægra hné - allt að tveir mánuðir eða lengur, vonast til að hann verði kominn aftur í desember
- Donte DiVincenzo (Timberwolves) - slitin hægri hásin - frá því í playoffs í vor, tímarammi ekki gefinn upp
- Tyrese Haliburton (Pacers) - væg tognun aftan í vinstra læri - að minnsta kosti tvær vikur
- Ivica Zubac (Pacers) - tognun á vinstri ökkla - óvíss tímarammi
- Ja Morant (Blazers) - meiðsli aftan í vinstra læri - óvíss tímarammi
- Jaren Jackson Jr. (Jazz) - rifið liðband í hægra hné - sex til átta vikur
- Lauri Markkanen (Jazz) - tognun á hægri úlnlið - tæpur, metin degi til dags
- Kawhi Leonard (Raptors) - bólga í vinstra hné - að minnsta kosti ein vika, mögulega nokkrar vikur
- Jalen Suggs (Magic) - mar á beini í hægra hné - að minnsta kosti tvær vikur
- Paolo Banchero (Magic) - væg tognun á hægri ökkla (high ankle sprain) - um mánuður
- Justin Champagnie (Wizards) - brot í hægri fæti, aðgerð - nokkrir mánuðir, vonast til að hann verði kominn aftur fyrir All Star helgina.
