← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Tímabilið búið hjá Jalen Williams

Oklahoma City Thunder urðu fyrir blóðtöku í nótt þegar að stjörnuleikmaður liðsins, Jalen WIlliams varð fyrir alvarlegum meiðslum og gæti misst af öllu tímabilinu.

SGA

Williams, sem er af mörgum talinn næst mikilvægasti leikmaður OKC var einnig talsvert á meiðslalistanum í fyrra og skoraði rúm 17 stig að meðaltali í leik í einungis 33 leikjum.

Eftir árás á körfuna og troðslu féll Williams til jarðar og lenti illa. Niðurstaðan ökklabrot og fótbrot og þykir ólíklegt að hann stígi aftur á völlinn á þessu tímabili.

Það verður fróðlegt að sjá hvort þessar vendingar neyði OKC til þess að skoða leikmannamarkaðinn en Cason Wallace verður einnig lengi frá eftir að haf meiðst á öxl.

Fleiri fréttir