← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Thunder sækja styrk

Eftir mikið meiðsla vesen sækir OKC væng sem var án samnings

Thunder sækja styrk

Svo virðist sem að menn séu að falla niður hver af öðrum í Oklahoma og var fyrir víst að Sam Presti gat ekki beðið mikið lengur með að finna liðsauka. Thunder áttu eitt pláss eftir til að fylla í og hafa þeir samið við Ochai Agbaji til að fylla það.

Eflaust vita ekki margir hver Agbaji er þar sem ferilinn hefur ekki verið áberandi. Ochai er 26 ára og var hann valinn númer 14 í nýliðavalinu 2022. Hann hefur leikið með Utah, Toronto og Brooklyn og skorað 7,2 stig að meðaltali í 263 leikjum. Besta tímabilið hans var 2024–25 með Toronto, 10,4 stig í leik og 39,9% nýting í þriggja stiga skotum. Í fyrra var hann í vonlausu Brooklyn og átti hann sitt versta tímabil með 5,1 stig og aðeins 26,6% á þristum. Knicks létu hann fara rétt fyrir mót.

Fleiri fréttir