NBA-fréttir
Thunder semja við kjarnann - Cason Wallace semur til 2032
Oklahoma ætla ekki að gera sömu mistök og áður og framlengja Cason Wallace til 5 ára fyrir 139 milljónir dollara.

Undafarna daga hafa NBA liðin verið á fullu að framlengja þá ungu stráka sem eru orðnir löglegir til, Cason Wallace varð núna einn af þeim.
Wallace skrifar undir 139 milljóna samning til fimm ára sem gera tæpar 28 milljónir að meðaltali á ári.
Margir voru að pæla hvort Thunder myndu bíta í súra eplið og láta Cason eftir þann pening sem hann telur sig eiga skilið. þeir hafa nú þegar borgað þremur stjörnum sínum og tveimur lykilmönnum og á tímum the seinni svuntu launaþaksins hafa lið verið hrædd við að borga leikmönnum.
Thunder gátu aðeins gert þetta með því að losa sig við þrjá aðra lykilleikmenn í sumar. Lu Dort, Aaron Wiggins og Isiah Joe.
Cason Wallace mun að öllum líkindum vera byrjunarliðsmaður og hefur í stór fótspor að feta eftir Lu Dort.
