NBA-fréttir
Þrír með 40 stig eða meira í nótt
Fjórtán leikir fóru fram í NBA í nótt og það skorti ekki flottar frammistöður.

Dagskráin var löng í nótt og margir áttu góðan leik, en þrír leikmenn stálu senunni:
Luka Dončić – 40 stig, 9 fráköst, 7 stoðsendingar
Lakers unnu þægilegan sigur á Kings, 116-103, þar sem Luka var enn og aftur langstigahæstur. Þetta var þriðji leikurinn í röð hjá Luka með 40 stig eða fleiri. Hann hefur skorað yfir 40 stig í fimm leikjum, en átti einn leik þar á milli á hrekkjavökunni þegar hann skoraði 37 stig í tapi gegn Warriors. Dončić leiðir deildina með 38,5 stig að meðaltali.
Shai Gilgeous-Alexander – 42 stig, 4 fráköst, 8 stoðsendingar
Thunder mættu Cavaliers annan leikinn í röð og unnu annan sigur í röð. Leikurinn í nótt var ekki eins jafn og sá fyrri, Oklahoma leiddi allan tímann. Það þurfti samt aftur stórleik frá Shai. Hann skoraði 43 stig fyrir tveimur dögum og fylgdi því eftir með sínum öðrum 40 stiga leik í röð, að þessu sinni með 42 stigum.
Victor Wembanyama – 52 stig, 24 fráköst, 8 blokk
Síðast en ekki síst var geimveran sjálf með sögulega frammistöðu. Wembanyama varð fyrsti leikmaðurinn til að skora að minnsta kosti 50 stig og taka 20 fráköst í eins stigs sigri síðan Wilt Chamberlain gerði það árið 1964. Hann er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu NBA með slíka tölfræðilínu og bætist þar í hóp með Chamberlain og Elgin Baylor. 52 stig og 24 fráköst eru hvort tveggja það mesta sem Wemby hefur náð í einum leik.
