NBA-fréttir
Spike Lee vill að Knicks sniðgangi Hvíta húsið
Leikstjórinn og Knicks aðdáandinn, Spike Lee, hvetur leikmenn New York Knicks til þess að þekkjast ekki boð Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að heimsækja Hvíta húsið.

Í mörg ár var það hefð að NBA meistarar hvers árs gerðu sér ferð í Hvíta húsið að heilsa upp á forsetann sem heiðraði liðið. Þetta þótti mikil upphefð allt þar til Donald Trump var kjörinn forseti í fyrra skiptið árið 2016 en árið eftir höfnuðu leikmenn meistaraliðs Golden State Warriors því að heimsækja forsetann umdeilda.
Nú hefur leikstjórinn Spike Lee lagt orð í belg og hvatt sína menn í Knicks til þess að mæta ekki í heimsóknina.
Dolan(eigandi Knicks) getur ekki þvingað liðið til þess að mæta. Það er langt síðan liðin hættu að mæta. Þeir eru ekki að fara, ég vona að þeir fari ekki.
Sagði Spike Lee í samtali við Variety.
