Meiðsli
Pacers tefldu aðeins fram sex leikmönnum
Í leiknum gegn Hawks á mánudagskvöld var meiðslalistinn svo langur að Indiana gat aðeins teflt fram sex leikmönnum.

Í síðasta leik Indiana, gegn Atlanta 2. nóvember, var meiðslalistinn svo langur að aðeins sex leikmenn komu við sögu hjá liðinu. Bekkurinn var aðeins skipaður af Kobe Brown sem spilaði í 38 mínútur.
Eftirtalda leikmenn vantaði í leikinn:
Kelly Oubre Jr. – marið hné (dró sig út á síðustu stundu)
Tyrese Haliburton – aftanlærisvöðvi
Pascal Siakam – hvíld
Johnny Furphy – hné
T.J. McConnell – aftanlærisvöðvi
Larry Nance Jr. – veikindi
Andrew Nembhard – háls
Aaron Nesmith – aftanlærisvöðvi
Ben Sheppard – hné
Obi Toppin – tognun í mjóbaki
Ivica Zubac – ökkli
Indiana tapaði leiknum naumlega, 108-104, og enginn leikmaður spilaði í færri en 35 mínútur:
Jarace Walker – 45 mínútur, 15 stig
Braden Smith – 42 mínútur, 19 stig
Jalen Slawson – 41 mínúta, 12 stig
Jay Huff – 40 mínútur, 22 stig
Kobe Brown – 38 mínútur, 16 stig
Quenton Jackson – 35 mínútur, 20 stig
Næsti leikur Indiana er í nótt gegn Grizzlies í Memphis og verður athyglisvert að sjá hversu margir verða orðnir heilir.
