NBA-fréttir
Annar í sögunni til þess að ná 200 þreföldum tvennum
Nicola Jokić heldur áfram að skrifa nafn sitt í sögubækurnar

Eftir sigurinn í nótt gegn Pelicans 104-91 er Nikola Jokić kominn með 200 þrefaldar tvennur. Hann er aðeins annar leikmaðurinn til þess að ná þessum árangri.
Russell Westbrook er hinn og er hann efstur á listanum með 209 eða 9 meira en Nikola Jokić. Það er afar líklegt að við sjáum hann slá metið á þessu tímabili.
Það tók Westbrook 18 tímabil til að ná þessu meti en Jokić var að hefja sitt 12 tímabil.
Nikola var með 21 stig, 10 fráköst og 13 stoðsendingar í nótt.
