← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Meiðslavesen í Oklahoma

Thunder byrja tímabilið 4-0 en menn eru að detta út hægri vinstri.

Meiðslavesen í Oklahoma

Thunder komu inn í tímabilið að mati margra sem eitt af líklegustu liðum til að vinna titilinn, ef ekki það líklegasta. Þeir þurfa hinsvegar að spila næstu mánuði án þeirra næst besta leikmanns. Það eru þó ekki einu skakkaföllin.

Jalen Williams, Cason Wallace og Alex Caruso

OKC mætti Clippers þann 25 október og unnu þann leik 108-101 en voru það ekki stærstu fréttirnar þar sem bæði Jalen Williams og Cason Wallace þurftu aðgerð eftir leikinn og er spáð að þeir verði frá í þó nokkra mánuði.

Jalen Williams tók vinstri ökklann úr lið og brotið sperrileggsbein (fibula). Þetta eru svipuð meiðsli og Gordon Hayward lenti í opnunar leik Boston árið 2017. Líklegt er að Williams missi af öllu þessu tímabili.

Cason Wallace sleit vinstri axlarvör (labrum) og er spáð einnig nokkra mánaðar fjarveru, ekki góð byrjun eftir að hafa skrifað undir nýjan samning og loksins orðinn fastur meðlimur í byrjunar liðinu.

Alex Caruso rúllaði ökklann gærkvöldi þann 26 október eða aðeins degi síðar og kom ekki aftur í leikinn. Ekki er kominn niðurstaða á hversu lengi hann er frá.


Það er klárt mál að næstu mánuðir verða þungir fyrir Oklahoma en þeir eru með ótal marga unga leikmenn sem eru tilbúnir að stíga upp. Margir hafa verið fljótir að kalla til að Presti fari á leikmannamarkaðinn og nýti meidda leikmenn og picks til að fylla skarðið en hann sagðist ekkert vera að drífa sig í því og hugurinn hans er aðeins hjá þeim meiddu.

Fleiri fréttir