← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Körfubolti.net lið vikunnar #1

Körfubolti.net hefur valið fyrsta lið vikunnar og það er samansett af eftirfarandi leikmönnum

Körfubolti.net lið vikunnar #1

Í vetur ætla Leó og Sigurður að koma saman og velja að þeirra mati hvaða fimm leikmenn áttu bestu vikuna. Hvert lið mun vera skipað af tveimur bakvörðum, tveimur framherjum og einum miðherja. Hér kemur lið fyrstu vikunnar:

Ty Jerome - Grizzlies

Hvaðan kom hann? Ty Jerome fyllir í skarð Ja Morant á besta veg og leiðir ungt Grizzlies lið að 4-0 byrjun. Liðið sigraði Jazz, Warriors, Kings og aftur Jazz.


29,8 stig, 3,5 fráköst, 6,5 stoðsendingar, 50,6% skotnýting, +15,8

Tyrese Maxey - 76ers

Maxey hefur stimplað sig sem aðal maðurinn í nýja fab-five Sixers liðinu. Hann leiddi þá til 3-1 sigurhlutfalls í fyrstu vikunni og kom eina tapið gegn Pistons án Embiid. Þeir unnu Knicks, Cavs og Bucks.


28,8 stig, 4,0 fráköst, 4,8 stoðsendingar, 46,6% skotnýting, +8,5

Brandon Miller - Hornets

Brandon átti einn slæman leik í þessari viku með 6 stig úr 14 skotum gegn Hawks og var það eini tapleikur vikunnar. Annars átti hann tvo leiki með yfir 30 stig, 34 gegn Heat og 39 gegn Wizards. Hornets unnu einnig Nets og byrja tímabilið 3-1.

24,3 stig, 4,8 fráköst, 1,5 stoðsending, 37,0% skotnýting, -1,3

Jalen Johnson - Hawks

Körfubolti.net metur gengi liðsins mikið í vali leikmanna og er Jalen Johnson með versta vinningshlutfallið af þeim sem voru valdir. Hawks enda fyrstu vikuna 2-2 með sigra gegn Magic og Hornets en töp í tveimur jöfnum leikjum gegn Rockets, þrátt fyrir þessi tvö töp í röð var Jalen til fyrirmyndar og heldur uppteknum hætti.

21,5 stig, 9,8 fráköst, 8,3 stoðsendingar, 42,6% skotnýting, +7,0

Alperen Şengün - Rockets

Eftir skömmustulegan endi á seinasta tímabili byrja Rockets 4-0 með sigra gegn Mavs, Spurs og tvisvar gegn Hawks. Alperen hefur verið einn besti ef ekki besti leikmaður Rockets, innkoma Fred VanVleet virðist vera stór fyrir gæði skotana sem Şengün fær.

24,5 stig, 9,0 fráköst, 7,0 stoðsendingar, 58,1% skotnýting, +17,8

Fleiri fréttir