NBA-fréttir
Leikir helgarinnar á Livey
Loksins loksins er NBA kominn í gang aftur. Kíkjum á hvaða leikir er í beinni um helgina á Livey.

Eftir frábæran opnunar dag þar sem við sáum Pistons, 76ers og Thunder vinna sýna fyrstu leiki, heldur veislan áfram.
Í vetur verða venjulega tveir leikir í beinni á Livey hverja helgi, einn á laugardegi eða aðfaranótt sunnudags og hinn á sunnudegi. Þetta eru akkúrat þeir dagar sem henta okkur heima á klakanum og að sjálfsögðu verða íslenskir lýsendur á þessum leikjum. Fyrir hverja helgi ætlum við að fara yfir liðin sem mætast og við hverju má búast.
Byrjum þessa veislu á:
Miami Heat @ Charlotte Hornets
Laugardag 24. október Kl. 22:00
Lýsandi - Leó Már Jónsson
Miami var eitt þeirra liða sem tóku þátt í risastórum leikmannaskiptum í fyrra og fékk til sín tvöfaldan MVP, meistara og MVP úrslitanna, Giannis Antetokounmpo. Hann byrjaði af krafti í Heat-treyjunni með 35 stig en þurfti að bíta í það súra epli að Miami átti ekki séns gegn Minnesota og nýju tvíeyki þeirra. Þeir mættu svo Pistons í kaflaskiptum leik en Giannis var eini sem mætti til leiks og byrja þeir tímabilið 0-2, Bam var aðeins með 4 stig er klárt að Heat þarf meira frá honum.
Charlotte vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Brooklyn en voru vonlausir í seinasta leik gegn Atlanta. Miklar breytingar urðu á hópnum þegar ofurstjörnunni og uppáhaldi aðdáenda, LaMelo Ball, var skipt út fyrir Naz Reid, en hópurinn virðist þó vera í fínu jafnvægi. Hornets glíma við smá meiðsla krísu og þurfa enn fleiri að stíga upp gegn Heat í kvöld.
Utah Jazz @ Los Angeles Lakers

Sunnudagur 25. október Kl. 21:00
Lýsandi - Sigurður Orri Kristjánsson
Utah kemur inn í þennan leik eftir tap í fyrsta leik gegn Memphis, þar sem liðið leiddi eftir fyrsta leikhluta en tapaði forskotinu snemma í öðrum og átti svo engin svör við Ty Jerome. Þeir svöruðu vel í nótt með æsi spennandi eins stigs sigri gegn New Orleans þar sem liðsheildin kom þeim yfir strikið, sjö leikmenn með yfir 10 stig JJJ þar hæstur með 24. Það verður gaman að sjá Darryn Peterson spila sinn fyrsta leik undir björtum ljósum Los Angeles.
Lakers unnu sinn fyrsta leik sannfærandi gegn gömlu köllunum í Golden State, 127-105, og var Luka allt í öllu með 28 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst. Luka kom út fyrir leikinn og sagði að þeir ættu eins og hver annar möguleika á titlinum og að þeir hefðu mikla trú á þessum hópi. Þetta er góð byrjun og heldu þeir þessu gegni áfram gegn grönnunum í Clippers þar sem Luka, Reeves og Walker voru allir með 22+ stig. Við sjáum þetta hins vegar mjög oft frá Luka, að hann byrjar tímabil af krafti en endar þau ekki eins, en honum til varnar virðist hann vera með hausinn rétt skrúfaðan á og liðið smellur vel saman. Verður áhugavert að sjá hvernig hann og Lakers bregðast við fleiri mönnum sem geta búið til sín eigin færi en bara Curry.
Tveir skemmtilegir leikir, og við munum kafa dýpra í liðin og viðureignirnar þegar líður á tímabilið. Þetta eru leikir helgarinnar, sjáumst á Livey
