NBA-fréttir
Launagreiðslur Porzingis frystar
Golden State Warriors hafa fryst launagreiðslur til stjörnumiðherjans Kristaps Porzingis en forsvarsmenn Warriors vilja meina að Porzingis sé ekki að uppfylla skuldbindingar sínar gagnvart liðinu.

Lettinn, sem hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann kom til Warriors á síðasta tímabili hefur samkvæmt fregnum ekki látið sjá sig mikið á æfingasvæði Kaliforníuliðsins og hefur liðið átt í erfiðleikum með að komast yfir upplýsingar frá læknum hans.
Hann er með um 20 milljónir dollara í laun á þessu ári, sem er ansi dýrt fyrir mann sem spilar ekki hjá liði sem vill gera eins vel og það getur á síðustu árum Steph Curry.
Porzingis hefur verið mikið meiddur á ferlinum og enn meira undanfarin ár en hann er með um 17 stig og 5 fráköst í einungis 15 leikjum fyrir Warriors. Margir NBA spekúlantar hreinlega óttast að ferlinum sé lokið, en við sjáum hvað setur.
