NBA-fréttir
Laskað Thunder lið sótti sigur í Cleveland
Oklahoma City vann Cleveland 117-112 og þurftu þeir stór leik frá SGA til að komast yfir línuna.

Öll 30 liðin spiluðu í gær, en einn besti leikurinn af þessum 15 var í Cleveland, þar sem Thunder sótti torsóttan sigur.
Oklahoma byrjaði betur og leikmenn eins og Kenrich Williams stigu upp á mikilvægan hátt. Williams skoraði 8 af 12 stigum sínum í fyrsta leikhluta og dekkaði einnig Harden og Mitchell á köflum. Thunder leiddi með 11 stigum í hálfleik og mest með 14.
Cleveland átti sterkan þriðja leikhluta og komst aftur yfir í upphafi þess fjórða, en tókst aldrei að hrista Oklahoma af sér, og þá sérstaklega ekki Shai. Á tímabili leit út fyrir að Shai væri eini leikmaðurinn sem tæki skot fyrir gestina. Hann skaut 35 sinnum í leiknum og 13 af skotunum komu í fjórða leikhluta.
Það var svo ríkjandi MVP sem gerði út um leikinn með “step back” þristi þegar 33 sekúndur voru eftir og kom Thunder þremur stigum yfir. Cleveland tókst ekki að skora aftur og Shai endaði með 43 stig og 8 stoðsendingar.
Stórkostlegur leikur hjá SGA, en Thunder þarf á fleiri leikmönnum að halda ef liðið ætlar að halda sér á floti í meiðslakrísunni.
