Greining
Körfubolti.net lið vikunnar #2
Körfubolti.net hefur valið annað lið vikunnar og það er samansett af eftirfarandi leikmönnum

Í vetur ætla Leó og Sigurður að koma saman og velja að þeirra mati hvaða fimm leikmenn áttu bestu vikuna. Hvert lið mun vera skipað af tveimur bakvörðum, tveimur framherjum og einum miðherja. Hér kemur lið annarrar viku:
Stephen Curry - Warriors
Curry virðist ekkert ætla að eldast. Kokkurinn byrjaði vikuna með flugeldasýningu í Denver, þar sem hann hitti úr öllum átta skotum sínum og skoraði 24 stig. Hann fylgdi því eftir með 44 stigum og sex þristum í sigri í Minnesota og skoraði svo 31 stig gegn Lakers. Curry hitti úr 17 af 33 þriggja stiga skotum í vikunni og Warriors unnu alla fjóra leiki sína, en hann fékk verðskuldaða hvíld í síðasta leik liðsins gegn Clippers.
33,0 stig, 5,0 fráköst, 5,0 stoðsendingar, 51,7% skotnýting, +12,0
Tyrese Maxey - 76ers
Þetta er önnur vikan í röð sem Maxey kemst í liðið og hann er sá eini sem er aftur á listanum. Philadelphia vann alla þrjá leiki sína og Maxey var atkvæðamestur í þeim öllum. Hann skoraði 27 stig í sigri í Indiana, 27 gegn Knicks og toppaði vikuna með 38 stigum í sigri í Charlotte. Sixers eru nú 6-1 og Maxey hefur verið stöðugur í öllum leikjum liðsins.
30,7 stig, 4,3 fráköst, 4,0 stoðsendingar, 51,7% skotnýting, +6,3
Jayson Tatum - Celtics
Eftir martraðarkenndan fyrsta leik gegn Detroit hefur Boston snúið blaðinu við og Tatum átti stóran þátt í öllum fjórum sigrum Celtics í vikunni. Hann skoraði 40 stig í eins stigs sigri á Nets eftir framlengingu og 32 stig í sigri í Orlando, þar sem hann fór 17 sinnum á vítalínuna og hitti úr 15 skotum. Boston er nú 5-1 og Tatum var valinn leikmaður vikunnar í Austurdeildinni af NBA.
30,3 stig, 5,8 fráköst, 7,0 stoðsendingar, 44,7% skotnýting, +8,8
Cooper Flagg - Mavericks
Frammistaða Flaggs á nýliðatímabilinu í fyrra og sérstaklega í upphafi þessa tímabils hefur verið ótrúleg og er auðvelt að gleyma að hann er aðeins 19 ára..
Flagg var maðurinn á bak við þrjá sigra Dallas í þremur leikjum. Hann skoraði 29 stig, tók 6 fráköst, átti 11 stoðsendingar og stal boltanum fimm sinnum í sigri á Heat, og skoraði svo 33 stig gegn Rockets. Hann nýtti 53,8% skota sinna og Mavericks eru 4-2 eftir vikuna.
29,3 stig, 6,7 fráköst, 8,3 stoðsendingar, 53,8% skotnýting, +8,0
Victor Wembanyama - Spurs
Síðast en alls ekki síst er það geimveran sjálf, Wemby byrjaði vikuna á 29 stigum og fimm vörðum skotum gegn Kings og fylgdi því eftir með 36 stigum og 14 fráköstum í sigri á Utah eftir framlengingu. Hann lauk vikunni með 43 stigum og sex vörðum skotum gegn Minnesota. Alls varði hann 13 skot í leikjunum þremur, 4,3 að meðaltali. Spurs unnu alla leiki vikunnar og hann var valinn leikmaður vikunnar í Vesturdeildinni af NBA.
36,0 stig, 10,3 fráköst, 3,7 stoðsendingar, 56,3% skotnýting, +15,7
