← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Miami án sigurs eftir fjóra leiki, hvað er að klikka?

Hræðileg byrjun hjá Giannis í Miami

Miami án sigurs eftir fjóra leiki, hvað er að klikka?

Miami var eitt þeirra liða sem erfitt var að spá um fyrir tímabilið. Liðið gerði miklar breytingar á hópnum og nú er ljóst að þeim spurningum sem við höfðum fyrir sumarið eru enn ósvarað.

En hvað er að?

Giannis og Bam passa illa saman
Heat hefur ekki unnið eina einustu mínútu í fjórum fyrstu leikjunum þar sem þeir eru saman inni á vellinum. Byrjunarliðið er með +/- upp á -28, en liðið vinnur mínúturnar þegar Bam er skipt út fyrir Pelle Larsson.

Bam hefur spilað langt undir getu
Bam er með um 12 stig að meðaltali í leik, 40% skotnýtingu og 16% í þristum. Eftir leikinn gegn Dallas sagði hann að verið væri að gera hann að „blóraböggli“. Kannski þarf hann að líta í eigin barm?

Skyttur Heat skjóta illa
Andrew Wiggins er með 12% nýtingu í þriggja stiga skotum, Tim Hardaway Jr. með 19% og Klay Thompson með 33%. Giannis dregur mikla athygli til sín, eins og við mátti búast, en þeir sem eiga að njóta góðs af því hitta ekki úr skotunum sínum.

Vörnin er slök.
Hún er í 25. sæti deildarinnar og liðið er í 29. sæti bæði í stigum eftir sóknarfráköst og í vörn í hraðaupphlaupum. Liðið hefur líka tapað frákastabaráttunni. Þetta kemur líklega mest á óvart, enda er liðið á blaði eitt besta varnarlið deildarinnar.

Sóknin í uppstilltri vörn gengur illa
Það kemur kannski minna á óvart að liðinu gangi illa í uppstilltri sókn, þar sem það er nú með tvo stóra menn sem vilja vera undir körfunni. Liðið er neðst í deildinni í hlutfalli skota úr uppstilltri sókn, en í fyrsta sæti í sókn á fyrstu sekúndum skotklukkunnar.

Ástæður til bjartsýni
Erik Spoelstra er einn besti þjálfari deildarinnar, og ef einhver getur snúið gengi liðsins við þá er það hann. Næst á dagskrá hjá Miami eru Atlanta, Indiana og svo kemur að ferð á vesturströndina.


Fleiri fréttir