Greining
Sigurganga Grizzlies stöðvuð
Memphis hefur komið flestum á óvart og byrjað tímabilið sjóðheitt þrátt fyrir að hafa sent hálft liðið á önnur mið. Getur liðið haldið því áfram?

Síðasta árið hefur verið brunaútsala hjá Memphis. Það byrjaði allt með því að Desmond Bane var sendur til Orlando síðasta sumar, svo var Jaren Jackson Jr. sendur til Utah í febrúar. Stærsti bitinn var Ja Morant, sem var sendur til Portland í sumar fyrir Jerami Grant og Kris Murray. Nú er nýr kafli hafinn hjá Grizzlies, en hvernig tókst liðinu að snúa við blaðinu svona fljótt?
Sex sigrar í röð
Memphis vann fyrstu sex leiki tímabilsins með 15,2 stigum að meðaltali, en það er rétt að setja fyrirvara við dagskrána. Fjórir leikjanna voru gegn Kings og Jazz sem hafa aðeins unnið einn leik hvor og litið afar illa út, svo erfiðleikastigið hefur verið lágt. Liðið vann Jazz 123-103 í opnunarleiknum og svo þrjá útileiki í röð, gegn Warriors (111-108), Kings (123-112) og Jazz (110-105). Þar á eftir kom 124-103 sigur í Portland, þar sem Blazers töpuðu sínum fyrsta leik. Stærsti sigurinn kom svo aftur gegn Kings, 136-105.
Jerome og Boozer leiða liðið
Ty Jerome hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar í byrjun og var í liði vikunnar #1 hjá okkur. Hann er með 28,2 stig, 5,7 stoðsendingar og 50,4% skotnýtingu í sex leikjum og hitti úr 16 af 38 þriggja stiga skotum. Hann skoraði 45 stig gegn Jazz í fyrsta leiknum og 40 stig í tapinu gegn Pelicans.
Cameron Boozer, nýliðinn sem var valinn þriðji í nýliðavalinu í sumar, hefur líka stimplað sig fljótt inn. Hann er með 17,4 stig, 10,3 fráköst og 5,6 stoðsendingar að meðaltali í sjö leikjum og náði fyrstu þreföldu tvennunni sinni gegn Portland 29. október þar sem hann var með 18 stig, 12 fráköst og 12 stoðsendingar. Hann er annar yngsti leikmaður sögunnar til þess. Hann skoraði 27 stig í sigrinum á Kings 1. nóvember og 25 stig í sigrinum á Warriors.
Dýptin hefur líka skipt máli. Cam Spencer átti 13 stoðsendingar gegn Kings, Isaiah Stewart skoraði 24 stig og hitti úr átta af níu skotum í sama leik, og Cedric Coward hefur tekið 11 fráköst í tveimur mismunandi leikjum. Bekkurinn skoraði 81 af 136 stigum liðsins í stærsta sigrinum.
Fyrsta tapið
Í nótt kom fyrsta tapið. Memphis tapaði 134-135 fyrir New Orleans á heimavelli eftir framlengingu. Staðan var 124-124 eftir venjulegan leiktíma, en Ty Jerome skoraði síðustu níu stig Memphis í venjulegum leiktíma og tryggði liðinu framlengingu. Þar skoraði Zion Williamson níu af 25 stigum sínum. Jeremiah Fears setti niður tvö vítaskot þegar 7,3 sekúndur voru eftir og kom Pelicans yfir. Jerome tók lokaskotið sem var 15 fet frá körfunni en féll það ekki.
Jerome átti stórleik og skoraði 40 stig, hitti úr 14 af 22 skotum og fimm af sex þristum. Cameron Boozer bætti við 18 stigum og 9 fráköstum. Hjá gestunum skoraði Williamson 25 stig og tók 11 fráköst, Derik Queen skoraði 20 stig og Trey Murphy III 18.
Tölfræðin skýrir tapið. Memphis hitti betur (51,6% á móti 47,5%) en tapaði boltanum 16 sinnum á móti 8 hjá Pelicans, og gestirnir skoruðu 21 stig eftir tapaða bolta á móti sjö hjá Memphis. Pelicans unnu líka baráttuna um annað tækifæri, með 22 stig á móti níu.
Tapið þýðir að ekkert lið í deildinni er lengur taplaust. Houston tapaði fyrir Dallas 30. október og var Memphis því síðasta liðið.
Hvað er framundan?
Memphis er 6-1 og næstu leikir eru ekki auðveldir. Liðið mætir Indiana aðfaranótt fimmtudags og svo Thunder aðfaranótt laugardags, báðir leikirnir eru í Memphis. Bæði Indiana og Oklahoma eru löskuð en sýnd veiði er ekki gefin. Nú fáum við að sjá hvort Memphis sé komið til að vera í efri hluta Vesturdeildarinnar eða hvort byrjunin hafi verið hagstæð vegna leikjaplansins, líkt og hjá Bulls, sem byrjuðu 5-0 í fyrra.
