NBA-fréttir
Boozer næst yngstur í sögunni með þrefalda tvennu
Boozer byrjar fyrsta tímabilið sitt vel með þrefalda tvennu eftir aðeins fimm leiki

Cameron Boozer nýliði Grizzlies náði fyrstu þreföldu tvennu ferilsins í nótt í sigri gegn Blazers.
Boozer var með 18 stig, 12 fráköst og 12 stoðsendingar á aðeins 28 mínútum.
Hann hitti úr 6 af 10 skotum, þar af 4 af 5 fyrir utan þriggja stiga línuna, og Memphis vann með 20 stigum meðan hann var inni á vellinum.
Josh Giddey setti metið þann 2. janúar 2022 þegar Oklahoma City Thunder tapaði 95-86 fyrir Dallas Mavericks. Hann var þá nýliði og aðeins 19 ára og 84 daga gamall, Boozer er 19 ára og 103 daga. Lína Giddy í met leiknum var 17 stig, 13 fráköst og 14 stoðsendingar.
