NBA-fréttir
NBA bikarinn hefst í kvöld. Tíu leikir á dagskrá:
Emirates NBA Cup fer af stað í kvöld í fjórða sinn, hvaða leikjum viltu ekki missa af?

Þrjú mismunandi lið hafa unnið bikarinn, Lakers, Bucks og Knicks. Hin 27 leita af sínum fyrsta bikartitli. Það eru 10 leikir á dagskrá í kvöld:
23:00
Wizards - Hornets
23:30
Nets - Pistons
Raptors - Magic
Celtics - Bulls
76ers - Knicks
00:00
Timberwolves - Clippers
Heat - Pacers
Mavericks - Rockets
02:00
Suns - Nuggets
Warriors - Lakers
Leikir kvöldsins að mati Körfubolta.net:
76ers - Knicks, 23:30
Xfinity Mobile ArenaPhiladelphia, PA
Við fengum æsispennandi leik á opnunardeginum þar sem LeBron og félagar í Philly unnu New York 106-100. Knicks hafa verið lengi í gang eftir titilinn og allskonar hlutir eru í gangi utan vallar. Knicks vilja hefna fyrir tapið gegn 76ers á opnunardegi deildarinnar.
Mavericks - Rockets, 00:00
American Airlines CenterDallas, TX
Tveir gamlir liðsfélagar og vinir mætast í Dallas, Irving og Durant. Þetta er Texas slagur og stemningin verður mikil, þessi lið mættust í fyrsta leik þar sem Rockets unnu 128-110 en var það einnig fyrsti leikurinn hjá Irving eftir að hafa mist af öllu síðasta tímabili. Rockets koma inn í þennan leik ósigraðir og virðast spila eins og vel smurð vél en Mavs gætu alveg komið mörgum á óvart í kvöld.
Warriors - Lakers, 02:00
Chase CenterSan Francisco, CA
Engin LeBron vs Curry en þá fáum við bara Luka vs Curry. Þessi leikur er fyrir þá allra hörðustu þar sem hann er klukkan tvö um nótt en það er föstudagskvöld og öll helgin framundan til að sofa. Þessi lið mættust einnig í fyrstu umferð þar sem Lakers unnu auðveldlega 127-105 en þar sáum við gamla nýliðann komast undir húðina á Luka og fór svo í langt viðtal þar sem hann hélt áfram að tala hann niður. Fyrir þá sem vita ekki er það Yaxel Lendeborg og mun hann eflaust vilja hefna sín fyrir tapið í fyrsta leik og sýna Luka hvernig körfuboltinn á að vera spilaður.
