← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Bikarinn byrjar 30 okt. Hér er allt sem þú þarft að vita

Emirates NBA Cup byrjar á föstudaginn, hvernig fer hann fram?

Bikarinn byrjar 30 okt. Hér er allt sem þú þarft að vita

Emirates NBA Cup fer í fram í fjórða sinn síðan hann var tilkynntur árið 2023. Hann hefst föstudaginn 30. október og úrslitaleikurinn verður 11. desember í Hinkle Fieldhouse í Indianapolis. Bikarinn virkar svipað og heimsmeistaramótið í fótbolta, með riðlakeppni fyrst og útsláttarkeppni á eftir.


1. Riðlakeppnin

  • Liðunum 30 var skipt með útdrætti í sex riðla með fimm liðum hvern, þrjá í hvorri deild. Hvert lið var sett í pott eftir árangri í fyrra og eitt lið úr hverjum potti dregið í hvern riðil.
  • Hvert lið spilar fjóra riðlaleiki, einn gegn hverju hinna liðanna í sínum riðli, tvo heima og tvo úti.
  • Leikirnir fara fram á svokölluðum „Cup Nights“, öllum föstudögum frá 30. október til 27. nóvember, auk þriðjudagsins 24. nóvember og miðvikudagsins 25. nóvember.


2. Hverjir komast áfram?
Átta lið komast í útsláttarkeppnina: sigurvegari hvers riðils (sex lið) og tvö „wild card“-lið. Wild card er það lið í hvorri deild sem endar í öðru sæti í sínum riðli og er með besta árangurinn af þeim.

Ef lið eru jöfn gilda þessar reglur í þessari röð: innbyrðis viðureign, stigamunur, skoruð stig, árangur frá síðasta tímabili og loks útdráttur. Framlenging telst ekki með í stigamun og skoruðum stigum.


3. Útsláttarkeppnin

  • Leikið er í átta liða úrslitum (4.-5. desember), undanúrslitum (8.-9. desember) og úrslitaleik (11. desember). Tapið þýðir að liðið er úr leik.
  • Átta liða úrslit og undanúrslit eru leikin á heimavelli liðsins sem er ofar, en úrslitaleikurinn er á hlutlausum velli í Indianapolis.
  • Allir leikir í útsláttarkeppninni verða sýndir á Prime.


4. Telja leikirnir í deildinni?
Já, nema úrslitaleikurinn. Riðlaleikirnir, átta liða úrslitin og undanúrslitin telja sem venjulegir deildarleikir. Úrslitaleikurinn telur ekki í árangur liða né tölfræði leikmanna. Öll lið spila áfram 82 leiki.


5. Hvað gera hin liðin?
Þau 22 lið sem komast ekki í útsláttarkeppnina spila tvo venjulega deildarleiki þá daga sem útsláttarleikir fara fram, þannig að enginn situr hjá.


6. Verðlaun
Það er ekki bara bikar undir heldur fá leikmenn einnig verðlaunafé, fyrir þá launahæstu er þetta ekki mikill peningur en ekki slæm viðbót.


Riðlarnir

Vesturdeild

  • A: Mavericks, Nuggets, Rockets, Suns, Jazz
  • B: Clippers, Grizzlies, Timberwolves, Pelicans, Thunder
  • C: Warriors, Lakers, Trail Blazers, Kings, Spurs

Austurdeild

  • A: Nets, Pistons, Bucks, Magic, Raptors
  • B: Cavaliers, Pacers, Heat, Knicks, 76ers

•• C: Hawks, Celtics, Hornets, Bulls, Wizards


Fleiri fréttir