← Til baka í fréttir

Meiðsli

Anthony Edward í aðgerð

Minnesota byrjuðu vel en fá skell eftir aðeins eina viku

Anthony Edward í aðgerð

Anthony Edwards fer í speglunaraðgerð á hægra hné í dag og verður frá í allt að tvo mánuði.

Hann hefur glímt við hnévandamál frá síðasta vori og segulómun á þriðjudag sýndi nýjan skaða. Ant spilaði aðeins 61 leik á seinasta tímabili sem voru hans fæstu hingað til.

Nákvæm greining hefur ekki verið gefin upp, en Tim Connelly hjá Timberwolves segir liðið búast við að hann verði „eins og nýr“ eftir aðgerðina og endurhæfingu.

Edwards skoraði 47 stig á mánudag þrátt fyrir að vera tæpur og er með 133 stig í fyrstu fjórum leikjunum sem er félagsmet.


Þessi tími í burtu gæti einnig kostað Edwards peninga og verðlaun, hann þarf að spila að minnsta kosti 65 leiki til að vera gjaldgengur fyrir einstaklingsverðlaunin deildarinnar og hafa þau áhrif á launamöguleika hans til framtíðar.

Fleiri fréttir