← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Yaxel Lendeborg kaupir hús handa móður sinni

Yaxel Lendeborg átti stóra helgi, 23 stig í sigri á Orlando og hús handa mömmu.

Yaxel Lendeborg kaupir hús handa móður sinni

Nýliðinn Yaxel Lendeborg hjá Golden State Warriors gaf móður sinni, Yissel Raposo, hús og flutti hana frá New Jersey til Kaliforníu. Hann birti atriðið í fyrsta myndbandinu á YouTube rásinni sinni, myndbandið heitir „This one’s for Mama Yax“ og þar sést hún taka við lyklunum með tárin í augunum.

„Fyrir mig er þetta stærra en körfubolti,“

Skrifaði Lendeborg með myndbandinu.

„Hún á skilið allt. Þetta snýst um að tryggja að fólkið sem trúði á mig fái líka að njóta blessunarinnar.“

Eftir sigur Warriors á Orlando á laugardag ræddi hann við fjölmiðla um hugmyndina

„Þetta hefur verið eitthvað sem mig hefur langað til að gera síðan í menntaskóla“

sagði hann og bætti við að fjölskylduhúsið hefði ekki verið slæmt, en að það hefði ekki hentað öllum sex í fjölskyldunni.

„Ég þurfti að vinna eins hart og ég gat til að gera þetta fyrir mömmu.“

Í myndbandinu segir hann við hana „Velkomin heim.“

Steve Kerr sagði gjörninginn „ótrúlegan“ og „hjartnæman“. Lendeborg hefur skorað 21,2 stig, tekið 7,2 fráköst og gefið 4 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu tíu leikjunum og skoraði 23 stig í sigri á Orlando á laugardag.

Fleiri fréttir