← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Körfubolti.net lið vikunnar #4

Körfubolti.net hefur valið fjórða lið vikunnar og það er samansett af eftirfarandi leikmönnum.

Körfubolti.net lið vikunnar #4

Í vetur ætla Leó og Sigurður að koma saman og velja að þeirra mati hvaða fimm leikmenn áttu bestu vikuna. Hvert lið mun vera skipað af tveimur bakvörðum, tveimur framherjum og einum miðherja. Hér kemur lið fjórðu viku:

Luka Dončić - Lakers

Dončić var með að minnsta kosti 32 stig í öllum þremur leikjum Lakers og liðið vann þá alla. Hann skoraði 32 stig, tók 8 fráköst og gaf 10 stoðsendingar í 124-114 sigri á Atlanta. Því næst skoraði hann 32 stig í 123-112 sigri á Milwaukee. Hann endaði vikuna á 43 stigum og 9 stoðsendingum í 131-123 sigri á Phoenix.

35,7 stig, 5,3 fráköst, 8,0 stoðsendingar, 45,3% skotnýting, +11,7

Cade Cunningham - Pistons

Detroit vann tvo af þremur leikjum vikunnar og Cunningham var í aðalhlutverki í þeim öllum. Hann skoraði 33 stig og gaf 8 stoðsendingar í 117-137 tapi gegn Miami og átti rólegra kvöld í 122-111 sigri á Washington, með 17 stig og 7 stoðsendingar. Hann átti svo stórleik í framlengdum 144-140 sigri á Washington, þar sem hann skoraði 52 stig, gaf 11 stoðsendingar og heldur Detroit ennþá á floti á meðan Duren er meiddur.

34,0 stig, 4,3 fráköst, 8,7 stoðsendingar, 50,8% skotnýting, +1,0

Franz Wagner - Magic

Wagner var með að minnsta kosti 33 stig í öllum þremur leikjum Orlando og liðið vann þá alla. Hann skoraði 33 stig í sigri á Sacramento, 38 stig í sigri á Utah og 35 stig, 9 fráköst og 12 stoðsendingar í 107-99 sigri á Milwaukee. Hann er annar leikmaður sem er að stíga upp í fjarveru annara, þeim vantar tvo lykil byrjunarliðs leikmenn ennþá í Paolo og Suggs

35,3 stig, 8,0 fráköst, 6,7 stoðsendingar, 54,4% skotnýting, +17,3

Giannis Antetokounmpo - Heat

Giannis var með 30 stig eða meira í öllum þremur leikjum Miami og eru þeir taplausir í vikunni. Hann skoraði 30 stig og tók 11 fráköst í 115-109 sigri á Utah, 37 stig í 133-121 sigri á Cleveland og 34 stig, 14 fráköst og 8 stoðsendingar í 137-117 sigri á Detroit. Giannis hefur verið lykilmaður Heat allt tímabilið og á stóran þátt í viðsnúningi liðsins eftir að það byrjaði 0-4. Antetokounmpo var valinn leikmaður vikunnar í Austurdeildinni af NBA.

33,7 stig, 11,3 fráköst, 4,7 stoðsendingar, 69,0% skotnýting, +10,0

Victor Wembanyama - Spurs

San Antonio vann alla fjóra leiki vikunnar og Wembanyama var með 20 varin skot í þeim. Hann skoraði 40 stig, tók 11 fráköst og varði 8 skot í 122-96 sigri á Phoenix og nýtti 15 af 19 skotum sínum. Því næst skoraði hann 32 stig í 124-119 sigri á Chicago og 26 stig og 10 fráköst í 110-102 sigri á Utah. Hann var rólegri í 123-85 sigri á Golden State með 12 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar. San Antonio er á 12 leikja sigurgöngu og Wembanyama var valinn leikmaður vikunnar í Vesturdeildinni af NBA.

27,5 stig, 10,5 fráköst, 4,0 stoðsendingar, 62,3% skotnýting, +22,8

Fleiri fréttir