← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Miami breytist í Vice City

Miami Heat fagnar útgáfu GTA VI með sérhönnuðum búningum og nýjum velli.

Miami breytist í Vice City

Miami Heat tekur á móti Milwaukee Bucks í Kaseya Center aðfaranótt fimmtudags klukkan 00:00 að íslenskum tíma, í sérstökum leik sem nefnist „A Night in Vice City“. Leikurinn fer fram kvöldið áður en tölvuleikurinn Grand Theft Auto VI kemur út, en hann gerist í Vice City, borg sem er byggð á Miami. Heat heldur viðburðinn í samstarfi við Rockstar Games.

Liðið spilar í endurhannaðri útgáfu af „Vice“ varabúningum sínum. Þeir eru svartir með bleikum og hvítum áherslum og „Vice City“ yfir bringunni. Á þeim er snúið Nike-merki, „VI“ til að vísa í GTA VI og sex bleikar stjörnur. Heat segir að spilað verði á „aldrei áður séðum velli“ sem er hannaður fyrir Vice City og aðeins notaður þetta eina kvöld.

Bæði leikmannabúningar og Swingman-treyjur verða seldar í takmörkuðu magni 18. nóvember. Heat lofar jafnframt „sérstökum viðburðum og uppákomum“ á leikdegi og segir að frekari upplýsingar komi á næstu vikum.

Fleiri fréttir