← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Veðjaði á NBA fyrir 50 milljónir dollara

Jontay Porter komst í fréttirnar á síðasta ári þegar hann var dæmdur fyrir að veðja á leiki deildarinnar þegar hann var leikmaður í henni.

Veðjaði á NBA fyrir 50 milljónir dollara

Nú er komið í ljós að veðmálastarfsemi Porter var mun umfangsmeiri en fyrstu fréttir gerðu ráð fyrir, en Porter virðist hafa veðjað á leiki fyrir meira en 50 milljónir bandaríkjadala sem eru meira en 6 milljarðar króna.

Þetta er meira en 20 sinnum það sem Porter þénaði á ferlinum í NBA sem hefur vakið upp spurningar um hvort fleiri leikmenn hafi mögulega tekið þátt.

Porter fékk lífstíðarbann frá NBA deildinni.

Fleiri fréttir