NBA-fréttir
Tvær vikur í viðbót hjá Jalen Duren
Stjörnumiðherji Detroit Pistons, Jalen Duren hefur verið frá vegna meiðsla. Sá tími lengist um tvær vikur.

Í fyrstu var talið að Duren myndi einungis vera frá í örfáar vikur en eftir nýjustu skoðanir er ljóst að sá tími lengist eitthvað áfram. Pistons töpuðu í nótt fyrir Los Angeles Lakers 121-116.
Duren hefur einungis komið við sögu í tveimur leikjum á tímabilinu og skoraði í þeim 13 stig að meðaltali og tók 7,5 fráköst.
