NBA-fréttir
Leikir helgarinnar á Livey
NBA deildin er í fullum gangi! Það verða tveir leikir í þráðbeinni á Livey um helgina.

Í vetur verða að jafnaði tveir leikir um helgar í beinni á Livey. Þessa helgi fáum við einn rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags og hinn á kvöldmatartíma á sunnudag.
Byrjum veisluna á
Dallas Mavericks @ Cleveland Cavaliers
Sunnudagur 15. nóvember kl. 00:30
Lýsandi - Sigurður Orri Kristjánsson
„Laugardagsleikurinn“ hefst rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags. Þá heimsækja Kyrie Irving og félagar Cleveland, þar sem hann mætir sínu gamla liði. Liðið er þó töluvert breytt frá því hann fór frá því sumarið 2017. Nú er það Donovan Mitchell sem leiðir lestina og Cleveland reynir að gera enn betur en í fyrra og komast í úrslitin í ár. Byrjunin hefur þó ekki verið eins góð hjá heimamönnum og þeir hefðu óskað. Þeir sitja í 6. sæti með 6-6 árangur. Eftir að hafa gefið Harden nýjan samning og sótt Peyton Watson frá Denver í sumar virðast sömu spurningar um „fit“ liðsins enn vera uppi. Með Harden að skjóta sitt versta á ferlinum lítur byrjunin ekkert alltof vel út fyrir lið sem er með augun á bikarnum.
Dallas er á allt öðrum stað og er markmið liðsins að komast í úrslitakeppnina. Þeir sitja í 10. sæti með 7-5 árangur og eru leik á eftir Golden State í 6. sæti, þannig að þeir virðast vera á réttum stað miðað við væntingar. Irving virðist ekki hafa misst skref eftir að hafa misst af öllu síðasta tímabili, og hann og Cooper mynda mjög gott tvíeyki. Talandi um unglinginn, þá kæmi það ekki undirrituðum á óvart ef hann yrði valinn í stjörnuleikinn, þar sem hann er með 24,6 stig, 6,9 fráköst og 6,5 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Cleveland spilar bikarleik í Miami gegn Heat í kvöld, en Dallas fær hvíld.
Indiana Pacers @ Philadelphia 76ers
Sunnudagur 15. nóvember kl. 18:00
Lýsandi - Leó Már Jónsson
Við fáum hreinlega ekki nóg af LeBron og nýja ævintýrinu hans í Philadelphia. Hann hefur vissulega tekið að sér mun minna hlutverk en við erum von á að sjá frá honum, en það virðist vera að virka. Philly vann síðasta leik sinn, þegar liðið fékk Raptors í heimsókn en LeBron fékk hvíld í þeim leik, þannig að við getum búist við því að hann spili mikið í þessum leik. 76ers sitja í 2. sæti Austurdeildarinnar með 10-3 árangur, aðeins leik á eftir Boston. Það er ekki langt síðan Indiana og 76ers mættust, en það var 29. október þegar fjórir leikmenn 76ers skoruðu 20 stig eða fleiri og liðið vann 114-109 sigur.
Líkt og í síðasta tapleik gegn Philly er Indiana án Haliburtons og mikið er um önnur meiðsli hjá liðinu. Þeir sitja í 11. sæti með 4-8 árangur, sem kemur mörgum á óvart, en nánast er hægt að kenna meiðslum alfarið um, þar sem menn hafa verið inn og út úr liðinu. Í einum leik spilaði Pacers aðeins sex leikmenn. Það styttist þó í Tyrese og hinir virðast vera að koma hægt og rólega til baka, og í síðasta leik sýndu þeir að þeir eru með svör við leik 76ers
Indiana mætir New York í bikarnum í nótt, þannig að Philadelphia fær meiri hvíld fyrir leikinn.
Tryggðu þér áskrift á Livey
