NBA-fréttir
Kallar Wembanyama ofmetinn
Þó margir séu yfir sig hrifnir af ungstirninu Victor Wembanyama þá finnst sumum hann hafa verið hafinn upp til skýjanna of hratt. Einn af þeim er fyrrum NBA leikmaðurinn Jeff Teague.

Teague, sem lék á 10 ára NBA ferli með liðum eins og Atlanta Hawks, Indiana Pacers og Milwaukee Bucks hefur haldið úti einu vinsælasta körfuboltahlaðvarpi heims, Club 520.
Hann er topp 10 leikmaður en ef hann er á topp 10 listanum þá er hann nr. 10.
Sagði Teague sem er greinilega ekki í aðdáendaklúbbi Wembanyama.
