NBA-fréttir
Festust í Mexíkó
Liðsmenn Denver Nuggets lendur heldur betur í erfiðri heimferð frá Mexíkóborg eftir góðan sigur á Indiana Pacers.

NBA er alltaf að reyna að stækka körfuboltann á heimsvísu með því að spila leiki utan Bandaríkjanna og Kanada. Nú var ferðinni heitið til Mexíkóborgar þar sem Denver Nuggets og Indiana Pacers mættust. Denver vann leikinn, en lentu í vandræðum á leiðinni til baka.
Liðsmenn Nuggets voru mættir út í vél þegar seinkunin varð og þurftu að snúa aftur á hótel liðsins. Þetta riðlar undirbúningi liðsins fyrir leikinn gegn Houston Rockets í nótt og er búist við því að alla helstu lykilmenn liðsins muni vanta í leikinn. Til að mynda Nikola Jokic, Jamal Murray og Aaron Gordon.
