← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Dejounte Murray heimtar að fara

Murray hefur fengið nóg af lélegu gengi Pelicans og heimtar að þeir skipti honum burt.

 Dejounte Murray heimtar að fara

Dejounte Murray og umboðsmaður hans, Rich Paul hjá Klutch Sports, hafa beðið New Orleans Pelicans um að skipta honum til annars liðs.

New Orleans hefur farið illa af stað á tímabilinu og er með fjóra sigra og átta töp, eins og Körfubolti.net greindi frá fyrr í dag.

Murray er með 13,4 stig, 4,6 fráköst og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik og er einnig feykigóður varnarmaður. Hann er á lokaári samnings sem er um 32 milljónir dollara að verðmæti, en er með "player option" upp á 30 milljónir dollara.

Fleiri fréttir