NBA-fréttir
Curry fór meiddur af velli
Stjörnuleikmaður Golden State Warriors, Stephen Curry fór af velli vegna meiðsla í leik liðsins í gærkvöldi en óttast er að hann gæti verið lengi frá.

Curry fann fyrir meiðslum í kvið eftir að hafa fengið högg og sagði við Steve Kerr þjálfara liðsins að hann hafi aldrei fundið fyrir slíkum meiðslum áður. Forsvarsmenn Warriors hafa miklar áhyggjur af meiðslunum enda Curry byrjað tímabilið stórkostlega.
Warriors munu að öllum líkindum fara varlega með leikstjórnandann sinn sem er orðinn 38 ára gamall. Curry er með 28 stig og 4 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu 10 leikjum tímabilsins.
