NBA-fréttir
Cavs strandaglópar í Miami, Mitchell vill fresta leiknum
Óvænt töf setti undirbúning Cleveland fyrir leikinn í kvöld úr skorðum.

Cleveland Cavaliers komust ekki heim frá Miami eftir tapið gegn Heat á föstudagskvöld. Ástæðan var flugbann í Bandaríkjunum vegna samskiptabilunar í flugumferðarstjórn, og liðið fékk ekki flugmann fyrr en í morgun.
Leikur Cleveland og Dallas Mavericks fer samkvæmt áætlun fram í kvöld klukkan 19:30 að staðartíma, eða 00:30 aðfaranótt sunnudags að íslenskum tíma. Donovan Mitchell sagðist þó sjálfur helst vilja að leiknum yrði aflýst.
Cavs léku án Evans Mobley, Sams Merrill og Nae’Qwan Tomlin gegn Miami.
