← Til baka í fréttir

NBA-fréttir

Butler ætlar að spila í G-deildinni

Endurhæfing Jimmy Butler gæti tekið óvænta stefnu.

Butler ætlar að spila í G-deildinni

Jimmy Butler leikmaður Golden State Warriors segist ætla að spila að minnsta kosti einn leik með Santa Cruz Warriors í G-deildinni áður en hann snýr aftur í NBA-deildina. Þetta kom fram í viðtali við The Athletic.

Butler sleit krossband í hægra hné 19. janúar og enn er óvíst hvenær hann snýr aftur. Hann er þó staðráðinn í að spila í G-deildinni, jafnvel þótt það verði aðeins í stutta stund.

„Þið fáið tækifæri til að sjá mig í Santa Cruz.“

Sagði Butler.

„Ég er alveg að fara að koma þangað og spila. Ég verð ekki lengi inni á vellinum, en ég fer þangað. Mig langar bara að spila.“

Butler viðurkennir að Mike Dunleavy, framkvæmdastjóri Warriors og fyrrverandi liðsfélagi hans hjá Chicago Bulls, sé kannski ekki hrifinn af hugmyndinni. Steve Kerr þjálfari Butlers lýsti hins vegar yfir stuðningi fyrir leikinn gegn Houston Rockets á miðvikudag.

„Auðvitað,“ sagði Kerr. „Sagði Jimmy ykkur þetta? Mér finnst það frábært. Þetta er fyndið því ég hef alltaf hugsað um þetta út frá áhuga mínum á hafnabolta. Þar fara leikmenn alltaf niður í minni deildirnar í endurhæfingu og spila nokkra leiki. Það er alveg rökrétt, en ég hef aldrei séð stjörnuleikmann fara í G-deildina. Hefur það gerst?“

Enginn leikmaður í sama styrkleikaflokki og Butler hefur spilað í G-deildinni í endurhæfingu. Stephen Curry æfði með Santa Cruz áður en hann sneri aftur eftir handarbrot í mars 2020 og Serge Ibaka spilaði fjóra leiki í G-deildinni árið 2021.

Butler segir að færsla á Instagram um NBA-leikmenn með reynslu úr G-deildinni hafi kveikt hugmyndina. Hann vísaði í töluna 275 leikmenn og segist ætla að bæta sér við þann hóp.

Kerr segist ætla að mæta ef leikjadagskráin leyfir.

„Ég verð þarna,“
„Svo lengi sem við erum ekki að spila sjálfir. Auðvitað.“

Fleiri fréttir